Fara beint í efni
Hestur á beit heima við bæinn Grýtubakka

Reiðtúr frá Grýtubakka · 1 klukkustund

Fyrstu kynni

Reiðtúr á íslenskum hestum við Eyjafjörð, 30 mínútna akstur frá Akureyri.

Bóka þessa ferð9.500 kr. á mann

Um ferðina

Þetta er tilvalin ferð til að kynnast íslenska hestinum í fyrsta sinn. Frá Grýtubakka ríðum við að ánni Gljúfurá, meðfram árbakkanum og upp að fjöllunum, þaðan sem útsýnið yfir Eyjafjörð er fallegt. Heima á bænum bíða heimabakaðar kökur og hressing.

Af öryggisástæðum ákveðum við leiðina dag frá degi, eftir lengd ferðarinnar, reynslu knapanna, veðri og færð.

Ef þú forfallast eða seinkar með stuttum fyrirvara, hringdu þá í okkur.

Fleiri stuttar ferðir