Fara beint í efni
Hross rekin gegnum snjóinn að vetri

Reiðtúr frá Grýtubakka · 1½ klukkustund · nóv–apr

Frostrósir

Reiðtúr á íslenskum hestum við Eyjafjörð, 30 mínútna akstur frá Akureyri.

Bóka þessa ferð12.500 kr. á mann

Um ferðina

Á veturna er landið oftast þakið þykkum snjó og norðanvindurinn lætur finna fyrir sér. Vel klædd í kuldagalla, ullarvettlinga og ennisband ríðum við í átt að Eyjafirði og öndum að okkur köldu vetrarloftinu. Sérstök birta vetrarsólarinnar gefur ferðinni dulúðugan blæ og gerir hana ógleymanlega. Heima á bænum hlýja heimabakaðar kökur og heitir drykkir.

Af öryggisástæðum ákveðum við leiðina dag frá degi, eftir lengd ferðarinnar, reynslu knapanna, veðri og færð.

Ef þú forfallast eða seinkar með stuttum fyrirvara, hringdu þá í okkur.

Fleiri stuttar ferðir